|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|
25.01.2008 22:33:30 / Sigrun
Í janúar er allra veðra von. Ég var búin að ráðgera ferð austur í dag og ætlaði að vera yfir helgina en nei, ónei. Hellisheiðin hefur verið lokuð í allan dag og verður í fyrsta lagi rudd á morgun. Í uppsveitunum er illfært samkv. upplýsingum vegagerðarinnar. Jón hringdi í Sigurð bónda á fimmtudaginn og þá var 1/2 metra snjólag yfir öllu og síðan þá hefur kyngt niður snjó á þessu svæði. Veðurfræðingur sagði að svona mikið hafi ekki snjóað í Reykjavík síðan 2000.
»
25.01.2008 10:10:24 / Sigrun
Morgunblaðið í dag: Í skóla einum í Vestur-Jórvíkurskíri á Englandi hafa allar barnabækur þar sem svín og grísir koma við sögu verið bannaðar. Er það gert til að móðga ekki múslimsku börnin en múslímar líta á svín sem vanheilagar skepnur og er neysla á svínakjöti bönnuð meðal þeirra og raunar Gyðinga líka. Annað mál af þessu tagi hefur verið á döfinni í héraðinu en til stendur að halda tónlistarhátíð barna í Kirklee í júní n.k. Þar átti m.a. að setja upp söguna um Rauðhettu og um litlu grísina þrjá og úlfinn en aðstandendum hátíðarinnar hafði verið skipað að skipta út grísunum og láta þrjá litla hvolpa koma í staðinn. Þegar hér var komið skarst hins vegar bæjarstjórnin í Kirklee í leikinn. ,,Það er eitthvert óttalegt rugl í gangi," sagði Jim Dodds, talsmaður yfirvalda í menntamálum þegar hann tilkynnti að bannið við grísunum þremur hefði verið afturkallað. ,,Grísirnir þrír verða á sínum stað á hátíðinni."
»
24.01.2008 09:11:55 / Sigrun
24 stundir: Lengi hefur gengið orðrómur um að rjóminn af handrukkarastétt landsins búi í Vogum á Vatnsleysuströnd og eiga þessir menn að halda sveitarfélaginu í ógnargreipum. Íbúar þurfa þó að óttast fleira en hnúa og kylfur því Vogar er eitt fimm sveitarfélaga á landinu sem hafa enn ekki lýst sig kjarnorkuvopnalaust svæði samkvæmt vefsíðu Samtaka hernaðarandstæðinga. Fréttablaðið: Bæjaryfirvöld í Kópavogi greiddu grunnskólakennurum 18 þúsund króna eingreiðslu um síðustu mánaðamót en öðrum láglaunastarfsmönnum bæjarins hlutfallslega meira.
»
18.01.2008 13:24:21 / Sigrun
Viðskiptaráðherra telur að sparnaður heimila vegna afnáms seðilgjalda verði á bilinu 20 til 50 þúsund króna á ári. Á móti kemur að kostnaður vegna útskriftargjalda verður líklega á bilinu 20 til 50 þús. á ári. Síminn og fleiri innheimta nú jafnhátt útskriftargjald í stað seðilgjalds. Fyrir mig persónulega skiptir engu máli hvort viðbótargjaldið á reikningum kallast seðilgjald eða útskriftargjald. Mér fannst samt þegar viðskiptaráðherra kynnti þessar nýju reglur að hann vildi að þessi gjöld féllu niður. Datt honum aldrei í hug að nafnbreyting gæti átt sér stað og allt yrði í sama farinu.
»
18.01.2008 10:13:47 / Sigrun
Sá sýninguna Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Útfærslan var að mörgu leyti sniðug og modern, t.d. síðasta kvöldmáltíðin er gerð að grillveislu og lærisveinarnir skella sér í heita pottinn. Klæðnaður lýðsins er allt frá virðulegri buxnadragt til hins frjálslegasta hippaklæðnaðar. Heródes er í teinóttum jakkafötum og Jesús sjálfur í leðurbuxum og prjónaðri mussu. Söngurinn var góður og mikið rokk í sýningunni enda um rokkóperu að ræða. Úrvals fólk sem þarna steig á svið en samt, já samt fannst mér vanta neistann og útgeislunina sem á að ná til salarins. Mér fannst á stundum að leikgleðina vantaði, fólkið væri bara í vinnunni sinni og biði eftir að sýningunni lyki. En ég skemmti mér engu að síður ágætlega. Fyrir sýninguna hittist hópurinn á Kringlukránni og þar borðuðum við dýrindis máltíð. Svo þegar ég kom heim var Desperate Housewifes einmitt að byrja í sjónvarpinu.
»
14.01.2008 15:58:57 / Sigrun
Ég er enn og aftur komin í kennslu. Er að leysa af í 6. bekk í þrjá daga, minnkaði úr hálfum mánuði, eins og fyrst var ráðgert, í þrjá daga. Þetta eru fínir krakkar og duglegir en hrikalega fjölmennur bekkur, eða 28 nemendur. Í dag kenndi ég stærðfræði, íslensku (bókmenntir) og ensku.
»
12.01.2008 17:41:17 / Sigrun
Ég var að taka til í kompunni minni og fór út á Sorpu með ýmislegt smálegt sem ekki er brúklegt lengur. Þar sá ég í einum gámnum (ekki þeim sem fer í Góða hirðinn) vel útlítandi, nýlegt leðursófasett, barnarimlarúm með dýnu, laki og öllu. Bara eins og krakkinn hefði verið tekinn upp úr rúminu og því ekið í Sorpu. Einnig voru þar heil bókahilla, glerskápur og fleira nýtilegt að því er mér virtist. Ég minnist frásagna frænda míns sem vann í Sorpu um tíma um hverju fólk hendir nú til dags og það var ekki bara úr sér gengið rusl. Hjá mér gætir enn áhrifa uppeldisins um að það þurfi að gernýta hvern hlut, gera við það sem bilar, gefa til þeirra sem á þurfa að halda ef maður er aflögufær og fara vel með.
»
10.01.2008 13:22:27 / Sigrun
Ég er búin að finna gamla Fimbulfamb spilið sem Gústaf fékk í jólagjöf þegar hann var 10 ára. Þetta spil gengur kaupum og sölum á Barnalandi um þessar mundir og nú eru a.m.k. tveir sem óska eftir því til kaups. Gústaf er ekki á því að selja það. Ég hef aldrei spilað það sjálf en held að það sé skemmtilegt orðaspil og nafnið er kostulegt. Mér skilst að það verði ekki endurútgefið vegna höfundarréttarmála eða eitthvað þess háttar.
»
05.01.2008 14:17:43 / Sigrun
Nú er vælið í Vilhjálmi Egilssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins hafið og fleiri í hans hópi taka undir, hér eftir nefndir þeir. Honum finnst af og frá að hækka persónuafsláttinn, það kostar ríkissjóð 40 milljarða. Miklu skynsamlegra að hans mati er að hækka launin um ,,góð 3%”. Það á sem sagt að hjakka í sama farinu, kjarasamning eftir kjarasamning. Góð 3% gera ekki einu sinni að halda í verðbólguna sem geisað hefur s.l. ár. Þegar kennarar gerðu kröfur í síðustu samningum fengum við að heyra að við værum að stefna stöðugleikanum í hættu, kröfurnar kölluðu á hækkun útsvars, minni sveitarfélögin hefðu ekki efni á að borga kennurum laun og fleira í þessum dúr. Það kæmi sér líklega best fyrir Vilhjálm og félaga að þrælahald væri í lög leitt hér aftur. Þá réðu þeir hvað borgað væri í laun, þeir gætu borgað eins lítið og þeir kærðu sig um og þeir gætu haft vit fyrir þrælunum. Það er aðeins þegar láglaunastéttirnar krefjast launahækkana að stöðugleikanum og verðbólgunni er stefnt í voða. Ekki þegar þeir sjálfir skammta sér laun og hlunnindi. Svo ef láglaunastéttunum tekst að semja bærilega koma þeir betur settu strax á eftir og krefjast enn hærri launa því að það verður að halda bilinu milli hinna betur og verr settu nógu breiðu. Það sem verst er að hinir ríku og voldugu komast alltaf upp með að stjórna svona, upphefja sjálfa sig og halda hinum niðri.
»
04.01.2008 14:37:15 / Sigrun
Vöngum velt: Af hverju eru leikarar svo oft fengnir til að tilsegja öðrum hvernig þeir eigi að koma fram, haga sér, tjá sig osfrv. þegar framkoma þeirra t.d. í sjónvarpi er stundum svo aulaleg að maður fær hroll. Þeir eru fyrir framan myndavélarnar með uppglennt augu, stjarft glott (eða bros), yfirmáta spenntir og taugaóstyrkir, flissandi, hreint út sagt eins og fífl. Mér flaug þetta svona í hug við lestur auglýsingar frá Capacent þar sem soldið fræg leikkona á að kenna framkomu og tjáningu. Þessi tiltekna leikkona er svo sem ekkert dæmi um þetta sem ég era ð segja, hún er reyndar fyrrverandi nemandi minn og ágæt sem slík. En það eru margir aðrir sem geta alls ekki verið fyrir framan myndavél án þess að (of)leika og fara í aulahlutverk
»
04.01.2008 12:19:37 / Sigrun
Útsölur eru auglýstar mikið þessa dagana eins og venjan er að lokinni jólavertíðinni. Ég er hætt að nenna að eltast við útsölur en er þó enn þess sinnis að vilja gera góð kaup. Sumar verslanir hafa þann sið að kippa nýlegu vörunum afsíðis timabundið en fylla búðina af gömlum lager og bjóða mikinn afslátt af slíkum vörum. Það er í góðu lagi enda á kúnninn engan rétt á því yfirhöfuð að fá tiltekna vöru á lækkuðu verði. Og á sama hátt er það í góðu lagi að draga fram gamla draslið og falbjóða það, væntanlega á lágu verði. Ef enginn vill kaupa draslið á janúarútsölunni má geyma það og setja það á júlí/ágúst útsöluna og svona koll af kolli. Hins vegar rakst ég inn í búð í Breiðholtinu í gær og þar voru allar vörur á 40 % afslætti, allt nýlegar vörur frá því í haust eða fyrir jól. Aðspurð sagði eigandinn að hún þyrfti að rýma fyrir nýjum vörum. Ég gerði reifarakaup, keypti tvær flíkur sem mig vantaði.
»
01.01.2008 03:25:19 / Sigrun
Gleðilegt nýtt ár til sjávar og sveita. Nýtt ár, nýjar vonir og væntingar. Samkvæmt stjörnuspánni í Morgunblaðinu í gær á nýja árið að færa okkur öllum á þessu heimili eitthverjar góðar breytingar, einkum er febrúar mánuður til heilla.
»
|